Þriðjudagur, 9. mars 2010
Er bloggið dautt?
Ég hef ekki bloggað síðan í nóvember 2008.
Veit ekki hvort ég er að byrja aftur að blogga, efast um það. Ekki nema þá kannski til að ræða hvað ég er að gera dagsdaglega. En það kannski þykir ekki mörgum áhugavert, og þó.
Ástæðan fyrir bloggleysi mínu er einföld. Umræðan, fjölmiðlarnir og pólitíkin er komin á þannig plan að mig listir ekki til að taka þátt. Mitt vandamál (ekki ykkar) en ég held ég sé ekkert ein á báti hvað þetta varðar. Ég finn mig alla vega ekki eina í neinum hópi með þessari hugsun.
Ég horfi ekki á fréttir lengur. Alls ekki á stöð 2 og helst ekki á RÚV. Fletti í gegnum fyrirsagnir á mbl, vísi og Dv.is og les hratt ef eitthvað áhugavert er í fréttum og þá aðallega um fræga fólkið í Hollywood. Kannski ekki alveg en næstum því, áhuginn er lítill á fréttum og það er engum um það að kenna nema Stjórnmálamönnum og graut leiðinlegum og ófaglegum fjölmiðlamönnum sem við íslendingar eigum. Endalausar tafir í pólitík, fyrirgreiðsla og læti og hamagangur sem maður skilur ekki að fólk leyfi sér. Hvar eru fagmannlegheitin og hvar týndu margir siðferðinu, munurinn á röngu og réttu. Eitthvað sem mamma kenndi!
Ég hef verið í Framsóknarflokknum í einhver 8 ár held ég. Hef aldrei hitt Finn Ingólfsson en heyrt mikið um hann gott og slæmt, aðallega það síðarnefnda. Ég hef heyrt misgóðar sögur af mörgum í pólitík, framsókn og öðrum flokkum en sögur eru sögur og þar sem ég upplifði þær ekki persónulega þá tek ég þeim sem Gróusögum sem þær eru nú oft á tíðum.
Ég lít hinsvegar á þetta sem fortíðarvanda. Allt þetta spillta lið sem seldi eða gaf þetta og hitt til þess eins að græða. Þetta er allt komið upp á yfirborðið svo nú þarf fólk að setjast niður, skrifa reglur og lög og koma í veg fyrir að þetta gerist aftur. Því ég lofa ykkur því að siðleysið er til í mörgum þarna úti og sagan endurtekur sig ef ekki er á henni tekið. Sorglegast af þessari vinnu í kringum pólitík er að sjá hvað ungur nemur, gamall temur. Það sem betur fer ekki algengt en það verður engin breyting á spillingu ef við lögum ekki leikreglurnar jafnóðum ef það kemur upp villa.
Um svipað leyti og ég bloggaði síðast þá var Jóhönnu Sigurðardóttur haldið á svakalegum stalli hjá alltof mörgum. Ég var því engan vegin sammála og fannst hún ekkert eiga heima inn á hinum "háa" Alþingi hvað þá í Ráðherrastóli. En ekki var á mig hlustað - nú held ég að fólk hefði betur gert það. En svona er það stundum, maður hrópar í vindinn en fólk er svo fast í sínu apparati. Flokkshollustan svo mikil sem ég skil fullkomlega. Þessi hugsun að ef þú ert í Framsókn þá hlýturðu að vera sammála öllu sem þar gengur á og jafnvel sammála öllum flokkssystkinum líka. Ég skil að fólk haldi þetta en þar fer svo fjarri. Það er eitt að vera ósammála og svo að vera ósammála en jafnframt virða og skilja sjónarmið annarra. Pólitíkin er svo persónuleg og svo svaðaleg tík, en án hennar erum við lítið. Hún á ekkert að vera auðveld en hún er viðkvæm og vandmeðfarin, ég tel nokkuð víst að tíkin er útriðin eftir hamfarir síðustu tveggja ára og tekur vafalaust einhvern tíma fyrir sárin að gróa.
Mánudagur, 24. nóvember 2008
Hvar er Björgvin litli bankamálaráðherra?
Á fundinn vantar: Davíð Oddsson, Jóhönnu Sigurðardóttir, Björgvin G. Sigurðsson Bankamálavitleysing, Björn Bjarnason og Guðlaugur Þór sem reyndar var búin að láta vita fyrirfram að hann væri á öðrum fundi í kvöld.
En ég hefði viljað sjá þarna Jónas frá fjármálaeftirlitinu og einnig hina tvo leppalúðana sem eru seðlabankastjórar með honum Davíð....
Ég er nokkuð viss um að ríkisstjórnin sé búin að ákveða að leyfa vindum að blása og ætla að standa af sér storminn.
- Kosningunum verður ekki flýtt
- Davíð Oddsson víkur ekki sem Seðlabankastjóri
- Geir Hilmar heldur sínu striki, býður sig fram í formann og með hjálp Davíðs verður Þorgerði bolað burt.
- Jónas og félagar hjá FME halda áfram að rífa niður pappíra og fela sínar vitleysur með hjálp ríkisstjórnar
- Björgvin litli bankamálaráðherra - ég er nokkuð viss um að Ingibjörg sé búin að sjá ljósið. Hann verður látin fara.
- Ingibjörg heldur áfram sinni vitleysu.
- Þorgerður og Kristján Ara halda áfram sínu góða lífi í sitt hvoru húsinu í Hafnarfirði. Eitt sem er í eigu þeirra hjóna og annað sem er í eigu Kristjáns Arasonar - ekki ehf þó....
Ég er ótrúlega bjartsýn þrátt fyrir að hafa ekki eina né neina trú á þessu batteríi okkar.
Breytinga er þörf - BURT MEÐ DAVIÐ, BURT MEÐ STJÓRN FME - BURT MEÐ PÓLITÍSKTRÁÐIÐ BANKARÁÐ - NÝLIÐANIR Í STJÓRNMÁLAFLOKKANA ALLA.
|
Við verðum að fá að kjósa |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Mánudagur, 24. nóvember 2008
Flottur maður tilbúin í slaginn!
Birkir Jón hefur tekið slaginn og býður sig fram í varaformann.
Flokksþing okkar framsóknarmanna verður í janúar og verður þar skipt um forystu.
Birkir er ungur maður með gífurlega reynslu að baki. Þið megið tauta og raula eins og þið viljið um gamla framsókn. Sannleikurinn er samt sá að í framsókn er meirihluti þingmanna konur. Aldur alþingismanna er hvað yngstur og sýnir flokkurinn það flokka best að hann treystir ungu fólki til ábyrgðar.
Nú er bara að vona að aðrir flokkar fylgi í kjölfarið.
|
Birkir Jón sækist eftir varaformannsembættinu |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Sunnudagur, 23. nóvember 2008
Ættum við íslendingar ekki að íhuga eitthvað svipað?
Nú skelli ég þessu bara fram. Er ekki vel að mér í skattalögum og í raun hverju því sem viðkemur skattinum. Nema þá að ég skila öllu mínu sléttu og flottu og er afskaplega ánægð þegar ég þarf ekki að borga neitt.
Ættum við íslendingar ekki að íhuga hátekjuskatt í þessu árferði sem nú er?
Mér finnst mikilvægt alla vega að skerða ekki meir laun þeirra sem minnst hafa.
Einnig fannst mér athyglisverð hugmynd sem ég las á bloggi um daginn, man því miður ekki hjá hverjum. Þar var því fleygt fram að engin væri í raun með hærri laun en milljón... Hvað höfum við með meira að gera? Ég sé ekki að það hafi gert þeim sem hafa haft meira á milli handana síðast árið gott.
En hvað segið þið... Hátekjuskatt á Íslandi?
|
Darling sagður íhuga hátekjuskatt |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Föstudagur, 21. nóvember 2008
Einmitt. Hlakka til að sjá það!
Ég ætla ekki að taka mark á þessari frétt um væntanlegar launalækkanir fyrr en allt er klárt og stimplað.
Mitt traust til yfirvalda er ekki mikið í dag. Af hverju ætli það sé?
Annars vonast ég bara eftir góðum mótmælum á morgun.
Sjáumst sem flest á Austurvelli!
Áfram Ísland.
|
Óska eftir launalækkun |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Fimmtudagur, 20. nóvember 2008
SUF sendir Davíð bréf!
Kæri Davíð.
Þú þekkir okkur sennilega ekki, en okkur finnst við sannarlega þekkja þig. Þú hefur verið fjölskylduvinur hjá okkur flestum síðan fyrir fermingu og við vöndumst því að hlusta á þig tala og hlæja og okkur finnst alltaf jafn heimilislegt þegar þú birtist heima hjá okkur. Um tíma óttuðumst við að það yrði minna um heimsóknir frá þér vegna þess að þú fékkst sjálfum þér nýja vinnu. En viti menn, þú varst samt alltaf til í að kíkja við hjá okkur með eitthvað nýtt og spennandi í pokahorninu, nýja stýrivexti, óreiðumenn eða annað skemmtilegt.
Okkur langar endilega til að bjóða þér í mat. Það kreppir nú að vísu að hjá okkur, en aldrei svo að við getum ekki boðið vinum okkar í mat og átt skemmtilegt spjall. Það er bara svo margt að skrafa.
Við heyrðum þig nefnilega segja svo merkilega hluti á þriðjudaginn. Þú sagðir okkur frá því hvernig þú hefðir nú séð þetta allt saman fyrir og reynt að vara alla við. Hvernig stendur á því að enginn hlustaði á þig? Eða, hvernig stendur þá á því að í skýrslu Seðlabankans um fjármálastöðugleika, sem kom út í maí, er ekki gerð grein fyrir þeirri stórhættu sem þú varst búinn að sjá. Hlustaði kannski enginn í Seðlabankanum á þig heldur? Við könnumst við þetta. Það er heldur ekkert oft hlustað á okkur Framsóknarmenn. En, hvað með vin þinn, Geir? Af hverju trúði hann þér ekki? Þú getur trúað okkur fyrir þessu, við skulum ekkert fara lengra með það. Við kjöftum ekki frá vinum okkar.
Annað sem við getum rætt er þetta með Bretana. Við urðum rosalega spennt þegar þú sagðist vita hvers vegna Bretarnir hefðu notað hryðjuverkalög á okkur Íslendinga. Urðum síðan pínu skúffuð þegar þú vildir ekki segja af hverju. Við þekkjum nefnilega fólk, nánar tiltekið 80.385 karla og konur, sem eru svo reið út af þessum prakkaraskap í Gordon Brown að þau skrifuðu sig á heimasíðu til að segja honum að við séum ekki hryðjuverkamenn. Þau langar örugglega öll að vita af hverju Gordon gerði þetta. Við vitum reyndar að svona merkilegir menn eins og þú vita fullt af hlutum sem venjulegt fólk má ekki vita. En þá var nú soldið ljótt af þér að segja okkur að þú vissir. Varstu kannski að monta þig?
Best fannst okkur samt að heyra að þú ætlar sko ekki að sitja sem bankastjóri ef í ljós kemur að þú hefur ekki staðið þig. Það er gott að vita að þú lætur þér ekki detta í hug að vera áfram bankastjóri ef sú staða kemur upp að enginn vill hafa þig. Það er karakter.
Það er svo margt, margt fleira sem þú sagðir í á þriðjudaginn sem okkur langar til að ræða við þig. Svo endilega láttu okkur vita hvenær þú getur kíkt við. Við verðum með opið hús fyrir þig og aðra áhugasama á Hverfisgötu 33 frá kl. 12 til 14 laugardaginn 22. nóvember nk. Fátt er betra en grjónagrautur og slátur í hádeginu.
Kær kveðja,
Ungir framsóknarmenn
|
Ráðherrar vilja kosningar í vor |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Fimmtudagur, 20. nóvember 2008
Illt við þessa tilhugsun
Ég er búin að vera í algjörri blogglægð. Er að reyna að hrista upp í mér, tekst ábyggilega í prófatíðinni. Ég finn mér svo oft eitthvað annað að gera en að læra þegar mikið liggur við.
Nú undanfarið hef ég verið alveg ofboðslega svekkt og reið.
Reið yfir því að sama fólk stýri ennþá bönkunum, fjármálaeftirlitinu, seðlabankanum og ráðuneytum.
Hvað er um að vera? það er ekki hægt að nefna neina aðra lýðveldisþjóð sem lætur svona yfir sig ganga.
Ég er vonsvikin að fjölmiðlar skuli ekki vera betri en þetta. Kafa ekki dýpra í málin og heimti svör.
Hvernig stendur á því að Ingibjörg Sólrún sé búin að sitja einhverja sex fundi með bankastjórn án þess að hafa bankamálaráðherrann sinn með? Hvernig stendur á því að Þorgerður Katrín og hennar maður eigi hlutabréf og önnur hlunnindi frá Kaupthing sem síðan þurrkast út núna þegar gróðinn er ekki lengur fyrir hendi? Kristján Arason.ehf - á ekkert að fara ofan í þetta ferli. Þetta er ráðherra og það er bara í þessu máli sama hvort um Pétur eða Pál er að ræða.
Núna eru tveir þingmenn Framsóknarflokksins búnir að segja af sér á stuttum tíma vegna mismunandi mála.
Nú þurfa aðrir að fylgja í kjölfarið. T.d. Árni Matthiesen, Davíð Oddsson, BJÖRGVIN G. SIGURÐSSON, sem engin virðist treysta, hvorki Ingibjörg né aðrir, Jónas Jónsson - fjármálaeftirlitinu, og svo margir aðrir. Listinn er ekki tæmandi.
Það er á hreinu að nú er svo komið að Íslenska þjóðin líður ekki lengur að ráðamenn sitji sem fastast í sínum stólum þegar upp hefur komið deilumál.
Hið opinbera þarf að byggja aftur upp traust almennings sem er ekki neitt í dag!
Ég vil ekki kosningar í vor - tel ekki heppilegt að allir flokkar fari að snúa sér að kosningarbaráttu í stað þeirra vandamála sem fyrir eru. En nauðsynlegt er að allir flokkar hreinsi til hjá sér fyrir næstu kosningar. Nýtt fólk til ábyrgðar!
|
Nýja Seðlabankastjórn |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Þriðjudagur, 21. október 2008
Hvatningarljóð frá Júlla á Dalvík.
VIÐ SOFNUÐUM Á VERÐINUM....
Nú vandi steðjar okkur að og virðist endalaus
velmegunin orðin slík að fjandinn sleppur laus
krepputalið allsstaðar að æra sérhvern mann
og klúðrið alveg skelfilegt í kringum óhroðann.
Dimmir skuggar dansa yfir sjokkeraðri þjóð
sem fyrir nokkrum dögum þótti snjöll og ráðagóð
útrásina miklu studdi hún svo trú og dygg
fjármál landsins virtust vera örugg öll og trygg

En hættan lá í leyni og við gleymdum okkur öll
við það að eyða peningum og virkja ár og fjöll
kaupa allt sem hugur girntist bæði hér og þar
kaupa merkjaverslanir já heilu keðjurnar.

Kaupa jeppa, kaupa hús og verða rík og flott
Kaupa höll með garðhýsi og kaupa heitan pott
Kaupa líf sem gæti virst svo fullkomið og smart
Kaupa álit annarra en njóta þess þó vart.

Verðbólgan að sliga allt en við svo rosa klár
Nastaq þetta, Össur hitt og Dow Jones algjört fár
Vildum sýna veröldinni þó við séum smá
við gætum reddað heiminum ef þannig stæði á.
Nú stoltið sært og dapurlegt og þjóðin öll í sorg
sársaukann og vonbrigðin má sjá í bæ og borg
Bakland það sem fólkið taldi tryggja efri ár
tekið verður upp í skuld, en skilur eftir sár.

Þó það sé þyngr´en tárum tak´ að sættast þetta við
tilfinningar splundraðar og dapurt ástandið
þá saman öflug getum verið, ákveðin og sterk
fámenn þjóð með styrk sem getur gert mörg kraftaverk.

Upp með ermar, upp með bros og allir saman nú
aldrei meigum gefast upp né glata okkar trú
knúsumst bara þéttingsfast og hefjumst handa við
að bæta það sem bæta má og efla mannlífið.
BH 2008.
En...núna er dagurinn í dag íslenskur veruleiki...og því skylda okkar fullorðnu að takast á við hann...með jákvæðni...bjartsýni og krafti...nýta orkuna sem við eigum..og byggja börnunum okkar og barnabörnum nýtt og betra þjóðfélag...breyta áherslunum...hlúa að og gefa hvert öðru tíma...njóta þess sem er...og hætta að hugsa um það sem við höfum ekki....
Við erum þjóð elds og ísa...hamfara og hremminga...baráttu og sigurvilja og við gefumst ALDREI upp....því við getum ALLT....
Sunnudagur, 19. október 2008
Fanný sinnir móðurhlutverkinu..
Við hjónaleysin fórum í stórkostlegt 35 ára afmæli hjá Magnúsi stóra bróðir mínum.
Kvöldið heppnaðist fullkomlega og var svo gaman að lyfta sér upp með skemmtilegu fólki. Hvítvínið var gott í boðinu og vorum við komin heim um 4 í nótt. Bara gaman.
Ég fékk svo uppvakningu klukkan 7:30 í morgun. Alda vinkona komin með hríði og ég fékk þann heiður að sjá um eldri grísina á meðan þau hjónin fjölguðu mannkyninu.
Barnið var strákur og er svona fullkomin í alla staði.
Alda kann þetta og var búin að eiga drenginn klukkutíma eftir að hún kom inn á fæðingardeild. Geri aðrir betur.
Magnús bróðir átti afmæli í gær, 35 ára og Kristófer elsti sonur hans á afmæli á morgun og verður 14 ára... Aldrei að vita nema að maður fái boð í mat annað kvöld.. góða sósu í tilefni dagsins?
Til hamingju með dagana afmælisbörn og Alda og Maggi með litla kút.
Föstudagur, 17. október 2008
Ég er´ann
Nú er eitthvað í gangi svona klukk system. Ég get alveg tekið þátt í því eins og öllu öðru.
Klukk frá Dagrúni
- Gunnusjoppu
- Lífland
- Leikskólasvið Reykjavíkur
2. Fjórar íslenskar bíómyndir sem ég held upp á:
- Sódóma Reykjavík
- Stella í Orlofi
- Englar Alheimsins
- Með allt á hreinu
3. Fjórir staðir sem ég hef búið á:
- Fredriksstad - Norge
- Selfoss
- Siglufjörður
- Reykjavík
4. Fjórir staðir sem ég hef heimsótt í fríum:
- Costa Riga
- Mexicó
- Pólland
- Gamla góða Danmörk
5. Fjórir sjónvarpsþættir sem mér líkar:
- Grey´s anatomy
- Psych
- MONK
6. Fjórar síður sem ég skoða daglega:
- www.mbl.is
- www.hi.is
- www.suf.is
- www.facebook.com - nýtt fyrirbæri hjá mér og orðið frekar hættulegt
7. Fernt matarkyns sem ég held upp á:
- Kjötbollur
- Steiktur fiskur
- Bixie matur og egg. Helst eldað af pabba.
- Góð sósa.....
8. Fjórar bækur/blöð sem ég held upp á/les oft:
- Gestgjafinn - Er áskrifandi, my thing every month.
- Á rúmkantinum er alltaf Stóra Draumaráðningabókin
- Orð í tíma tölu
- Bókin með svörin
9. Fjórir staðir sem ég vildi vera á núna:
- Á sólarströnd - helst með coco loko í hönd
- Í Sönneborg - með tvær hlægjandi skvísur hlaupandi í kringum mig.
10. Fjórir bloggarar sem ég á að klukka:
- Elsa Sif
- Sara Hrund
- Bjarni Sigurður Kristjánsson
- Bibba Rokk
Þetta var nú furðu áreynslulaust.
Ég þarf að grafa upp lista af einhverjum 100 spurningum sem ég fann hjá Lárey. Eitthvert kvöldið svaraði ég öllum spurningunum en setti aldrei á bloggið. Myndi ekki nenna að svara þessu öllu aftur en ef ég á þetta þá skelli ég þessu á veraldarvefinn.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)


agnarbragi
agnesasta
amman
baboon
birkir
bjarnihardar
bjorgmundur
drp
eldjarn
fufalfred
gunnarbragi
hallib
hallurmagg
helgasigrun
hl
hlini
hugsarinn
hugsun
kaffi
kristbjorg
lafdin
maddaman
malacai
njalli
nonniblogg
obama
olafurfa
reynir
semaspeaks
smalinn
snj
stefanbogi
sveinnhj
vefritid
veraknuts
vestfirdingurinn




