. - Hausmynd

.

Hvar er Björgvin litli bankamálaráðherra?



Á fundinn vantar: Davíð Oddsson, Jóhönnu Sigurðardóttir, Björgvin G. Sigurðsson Bankamálavitleysing, Björn Bjarnason og Guðlaugur Þór sem reyndar var búin að láta vita fyrirfram að hann væri á öðrum fundi í kvöld.

En ég hefði viljað sjá þarna Jónas frá fjármálaeftirlitinu og einnig hina tvo leppalúðana sem eru seðlabankastjórar með honum Davíð....

Ég er nokkuð viss um að ríkisstjórnin sé búin að ákveða að leyfa vindum að blása og ætla að standa af sér storminn.

  • Kosningunum verður ekki flýtt
  • Davíð Oddsson víkur ekki sem Seðlabankastjóri
  • Geir Hilmar heldur sínu striki, býður sig fram í formann og með hjálp Davíðs verður Þorgerði bolað burt.
  • Jónas og félagar hjá FME halda áfram að rífa niður pappíra og fela sínar vitleysur með hjálp ríkisstjórnar
  • Björgvin litli bankamálaráðherra - ég er nokkuð viss um að Ingibjörg sé búin að sjá ljósið. Hann verður látin fara.
  • Ingibjörg heldur áfram sinni vitleysu.
  • Þorgerður og Kristján Ara halda áfram sínu góða lífi í sitt hvoru húsinu í Hafnarfirði. Eitt sem er í eigu þeirra hjóna og annað sem er í eigu Kristjáns Arasonar - ekki ehf þó.... 

Ég er ótrúlega bjartsýn þrátt fyrir að hafa ekki eina né neina trú á þessu batteríi okkar.

Breytinga er þörf - BURT MEÐ DAVIÐ, BURT MEÐ STJÓRN FME - BURT MEÐ PÓLITÍSKTRÁÐIÐ BANKARÁÐ - NÝLIÐANIR Í STJÓRNMÁLAFLOKKANA ALLA.


mbl.is Við verðum að fá að kjósa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Fanný Guðbjörg Jónsdóttir

Framsókn var 12 ár í ríkisstjórn, hjónabandið við Sjálfstæðisflokkinn var bersýnilega of langt. Framsóknarflokkurinn ber einnig ábyrgð á því ástandi sem núna er - Klárlega! Þótt að bankarnir hafi ekki verið jafn stórir og þeir urðu þegar við vorum í ríkisstjórn þá var upphafið í okkar ríkisstjórn og okkar er ábyrgðin ásamt mörgum öðrum einstaklingum / flokkum..

En Framsókn er ekki alslæm og það erum við framsóknarmenn ekki heldur. Við höfum staðið vörð um íbúðarlánasjóð, byggt um LÍN, styrkt utanríkisþjónustu sem þó hefur beðið hnekki síðustu mánuði. Verkefnin eru óteljandi en að sjálfsögðu eru þar verk inná milli sem eru vafasöm t.d. Írak og Kárahnjúkar. 
En við þurfum að læra af þeim mistökum sem okkar eldri vitringar hafa aðhafst.
Ég er nokkuð viss um að ný Framsókn sé að rísa. Ég hef trú á SUF, trú á mínum flokki og málefnunum.

Flokkurinn þarf að sanna sig að nýju, okkur mun takast það!

Fanný Guðbjörg Jónsdóttir, 24.11.2008 kl. 22:19

2 identicon

ég hef á tilfinningunni að stjórnmálamenn þessarar þjóðar og almenningur búi ekki í sama landi. en svo hef ég líka á tilfinningunni að stjórnmálamennirnir eru að gera sitt  besta, en málið er að ástandið er svo vont að það besta er bara ekki nógu gott. það er orðið afar erfitt að skilja á milli þeirra stjórnmálamanna sem eru að ríghalda í vinnuna sína og þeirra sem eru að reyna að gera gagn. svo eru alltaf þeir sem nýta sér aðstæður til að koma eigin sjónarmiðum eða flokki í betri mál á kostnað annarra. þetta er frekar óskiljanlegt ástand og eiginlega ekki fyrir neinn að taka eðlilegar ákvarðanir.. sérstaklega ekki á meðan Davíð situr sem fastast og almenningur borgar skuldir bankanna.

en það þarf sennilegast að hugsa langt út fyrir kassann til að sjá einhvern markanlega tilgang í þessu öllu saman.

ok.

sara hrund (IP-tala skráð) 27.11.2008 kl. 15:02

3 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Hér var fjarlægð athugasemd frá mér. Ertu framsóknarkvendi sem ekki þolir að heyra sannleikann?  Ég held að Björgvin sé að ganga í flokkinn þinn.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 27.11.2008 kl. 15:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband